Ragnar búinn að semja við FCK Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. maí 2011 11:08 Ragnar er hér annar frá hægri.
Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson verður í dag kynntur sem nýr leikmaður FC Kaupmannahafnar en hann hefur þegar skrifað undir samning við félagið, samkvæmt heimildum Vísis. Ragnar lék sinn síðasta leik með sænska liðinu IFK Gautaborg í gær er liðið tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum sænsku bikarkeppninnar. Liðið vann þá 1-0 sigur á Djurgården. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok leiktíðarinnar og því ákváðu forráðamenn Gautaborgar að selja hann nú í stað þess að missa hann frítt frá félaginu í haust. Samkvæmt sænska blaðinu Aftonbladet greiðir FCK um sjö milljónir sænskra króna fyrir Ragnar, um 130 milljónir íslenskra króna. Sömu heimildis Vísis herma að Gautaborg hafi á dögunum þegið boð frá belgíska félaginu Club Brugge upp á tæpar 100 milljónir en að þá hafi FCK komið inn í myndina. Félagaskiptaglugginn í Danmörku opnar þann 1. júlí og mun Ragnar formlega ganga til liðs við FCK þá. Ragnar verður 25 ára í næsta mánuði en hann hefur verið á mála hjá Gautaborg í fjögur ár. Þar áður lék hann með uppeldisfélagi sínu, Fylki. Ragnar á að baki sextán leiki með A-landsliði Íslands en hann er í landsliðshópnum sem mætir Dönum á laugardaginn. Sölvi Geir Ottesen er einnig á mála hjá FC Kaupmannahöfn en bæði hann og Ragnar eru miðverðir.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira