Einar Andri: Þetta verða hnífjafnir leikir Henry Birgir Gunnarsson skrifar 26. apríl 2011 15:45 Logi Geirsson fór með FH-ingum til Akureyrar.
Logi Geirsson mun spila með FH gegn Akureyri í kvöld þó svo hann sé ekki upp á sitt besta og geti ekki beitt sér af fullum krafti. Úrslitarimman um Íslandsmeistaratitilinn um handbolta hefst í kvöld. "Ég verð afleysingamaður á bekknum og reyni að hjálpa til. Ég verð ekki í stóru hlutverki," sagði Logi við Vísi í dag en þess utan eru aðrir leikmenn FH klárir. Einar Andri Einarsson, annar þjálfara FH-liðsins, viðurkennir að biðin eftir leiknum hafi verið löng og menn séu því spenntir að byrja. "Þessi níu daga bið er svolítið mikið og þetta hefði alveg mátt byrja fyrr. Það var samt fínt að fá tíma til að jafna sig eftir síðustu rimmu en fjórir til fimm dagar hefðu vel dugað okkur," sagði Einar Andri en FH-ingar eru nýfarnir á loftið á leið til Akureyrar. "Við erum búnir að æfa vel um páskana og skoða myndbönd af Akureyringunum. Menn mæta því vel undirbúnir en þetta verður geysilega erfitt verkefni enda var Akureyri með besta liðið í vetur og hefur þess utan frábæran heimavöll," sagði Einar Andri sem býst við jöfnum leikjum. "Liðin þekkjast mjög vel og munu tæplega koma nokkuð á óvart með sínum leik. Við höldum áfram með það spil sem hefur gengið vel eftir áramót. Ég á von á hnífjöfnum leikjum í þessari seríu."
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira