Gunnar Einarsson: Sagan er bara að endurtaka sig frá 2008 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. apríl 2011 22:21 Gunnar Einarsson. Mynd/Daníel
Gunnar Einarsson var einn af fimm Keflvíkingum sem skoruðu tólf stig eða meira þegar Keflvík vann 104-103 sigur á KR í framlengdum leik í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar tryggðu sér þar með oddaleik í einvíginu í DHl-höllinni á fimmtudaginn. „Við erum búnir að koma klárir í síðustu tvo leiki. Við höfum verið vel undirbúnir og tilbúnir til að berjast hverja einustu mínútu. Þó þeir komi með eitthvað áhlaup á okkur þá komum við alltaf til baka og látum það ekkert á okkur fá," sagði Gunnar sem skoraði 12 stig, tók 7 fráköst og hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum. „Við vitum það að við getum komið til baka og náð líka okkar sprettum alveg eins og þeir. Þetta er bara gott mál," sagði Gunnar en hvað hefur breyst frá því í fyrstu tveimur leikjunum sem KR-liðið vann sannfærandi. „Við vorum alls ekki klárir í slaginn í fyrstu tveimur leikjunum og misstum einbeitingu þegar líða tók á leikina. Það er það sem við erum ekki að gera í dag. Við einbeitum okkur núna af því að berjast og halda einbeitingunni út leikinn og þá kemur þetta hjá okkur," sagði Gunnar sem var líka í stóru hlutverki þegar Keflavík vann 3-2 sigur á ÍR fyrir þremur árum eftir að hafa lent 0-2 undir. „Nú er sagan bara að endurtaka sig frá því 2008. Við erum búnir að vinna tvo leiki í röð og þeir eru búnir að tapa tveimur leikjum í röð. Við erum á uppleið," sagði Gunnar að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Sjá meira