Nýr Kani með Keflavík í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. mars 2011 17:34 Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, til hægri.
Keflvíkingar hafa fengið nýjan bandarískan leikmann fyrir leik liðanna gegn KR í undanúrslitarimmu liðanna í Iceland Express-deild kvenna. Það er karfan.is sem greinir frá þessu. Sú heitir Lisa Karcic og spilaði síðast í Finnlandi þar sem hún var með átján stig og þrettán fráköst að meðaltali í leik. Jacquline Adamshick hefur spilað með Keflavík í vetur en það fékkst staðfest í gær að hún er ristarbrotin og geti því ekki spilað meira með liðinu í vetur. Það þurfti að hafa hraðar hendur að finna nýjan leikmann og gat Adamshick hjálpað til því Krasic er góð vinkona hennar frá því að þær léku saman í háskólaliði Villanova í Bandaríkjnum. Krasic kom til landsins laust eftir miðnætti í gær en Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, sagði við körfuna.is að hún hefði aðeins haft tvo og hálfan tíma til að ganga frá sínum málum í Finnlandi og koma sér út á flugvöll. Það hafa einnig verið mannabreytingar í liði KR eftir að Chazny Morris reif liðþófa í hné. KR fékk þá Melissu Jeltema sem átti ríkan þátt í sigri KR gegn Keflavík á þriðjudagskvöldið. Staðan í einvígi liðanna er 1-1 og hefur Margrét Kara Sturludóttir, leikmaður KR, misst af báðum leikjunum vegna leikbanns. Hún hefur þó nú tekið út sína refsingu og verður með gegn Keflavík í kvöld.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Króatar Dags í góðri stöðu en Ísland í þröngri stöðu Handbolti „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Sport Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Grindavík 74-79 KR | Risastór sigur KR Doncic skoraði 46 stig en þjálfarinn segir hann reyna á þolinmæðina Uppgjörið: Keflavík - Tindastóll 98-81 | Keflvíkingar skelltu Stólunum „Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Martin fagnaði eftir framlengingu Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Tryggvi og félagar sluppu með skrekkinn á móti botnliðinu NBA-leik frestað vegna óeirða í Minneapolis Elvar og félagar köstuðu frá sér sigrinum Njarðvík nær í nýjan miðherja eftir meiðslin Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Uppgjörið KR - Grindavík 93-71 | KR annað liðið til þess að vinna Grindavík Uppgjör: Tindstóll-Njarðvík 113-92 | Stólarnir léku sér að Njarðvíkingum „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Uppgjörið: Álftanes - ÍA 89-83 | Justin James afþiðnaði á réttum tíma Kári: Það koma dalir á hverju tímabili Leik lokið: ÍR - Stjarnan 109-118 | Stjörnumenn áfram á sigurbraut Uppgjörið: Valur - Þór Þ. 80-71 | Valsmenn unnu framlengdan leik Uppgjörið: Njarðvík-Keflavík 88-77 | Danielle og Brittany fóru á kostum Tryggvi og félagar eru áfram með fullt hús í Evrópubikarnum Abby með sigurkörfuna 0,8 sekúndum fyrir leikslok Áfall Njarðvíkur fyrir grannaslag kvöldsins Fyrsta Evróputap Stólanna í Síkinu Fjórði sigur Haukakvenna í röð KR - Valur 66-77 | Valur komst upp fyrir KR eftir sigur í rimmu liðanna Martin stoðsendingahæstur í Evrópusigri Sjá meira