Stefán samdi við Lilleström Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. mars 2011 21:25 Stefán í leik með íslenska landsliðinu.
Stefán Gíslason hefur samið við norska félagið Lilleström og mun hann spila með liðinu til 1. ágúst næstkomandi, að minnsta kosti. Stefán er aðeins þrítugur en á engu að síður langan feril að baki. Hann hefur leikið á Íslandi, Danmörku, Austurríki og sem unglingur með Arsenal á Englandi. Lilleström er fjórða norska félagið sem hann spilar með en hann var áður hjá Lyn, Strömsgodset og Viking en hann var hjá síðastnefnda félaginu sem lánsmaður frá Bröndby síðastliðið sumar. Stefán var keyptur til Bröndby frá Lyn árið 2007 og naut velgengni hjá félaginu fyrst um sinn. En þegar nýr þjálfari tók við liðinu var Stefán settur út í kuldann og spilaði hann síðast með liðinu í desember árið 2009. Hann stóð sig vel hjá Viking en aðilar náðu ekki saman um áframhaldandi samning. Stefán hefur því ekkert spilað síðan í júlí á síðasta ári en verður nú aftur mættur í slaginn þegar að keppni hefst í Noregi á ný. Til stóð fyrr í vetur að hann myndi ganga til liðs við Aberdeen í Skotlandi en ekkert varð að því þar sem að forráðamenn Bröndby gleymdu að skila inn gögnum um starfslokasamning milli Stefáns og félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokaði í lok janúarmánaðar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira