Teitur: Besti leikurinn okkar á tímabilinu Stefán Árni Pálsson í Ásgarði skrifar 4. mars 2011 21:38 Sean Burton var með fjórtán stoðsendingar í kvöld. Mynd/Valli „
Þessi sigur var aldrei í hættu og líklega besti leikur okkar á tímabilinu," sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, kampakátur eftir sigurinn í kvöld. Stjarnan bar sigur úr býtum gegn Íslandsmeisturum Snæfells, 94-80, í 20. umferð Iceland-Express deild karla í kvöld. „Við misstum aðeins dampinn í síðasta leik og vorum ákveðnir í kvöld að láta það ekki koma fyrir aftur. „Ég bjóst nú við þeim þó nokkuð grimmari varnarlega og við fengum að spila okkar leik nokkuð óáreittir. Svo þegar lýður á leikinn eflist sjálfstraustið og þá er erfitt að stöðva okkur." „Þetta er frábært skotlið og um leið og við gáfum þeim örlítið pláss þá fóru þeir að hitta vel, en sem betur fer náðum við að halda út með góðan varnarleik stórann hluta af leiknum," sagði Teitur. „Ég held að við höfum bara mætt aðeins stemmdari og tilbúnari til leiks. Snæfellingar voru aðeins á hælunum í byrjun og það náðum við að nýta okkur og eftir var þetta aldrei spurning. Það var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að halda einbeitingu allan leikinn en þetta var klárlega besti leikurinn hjá Justin Shouse á þessu tímabili og vonandi er þetta það sem koma skal hjá honum." Stjarnan tapaði illa gegn ÍR í síðustu umferð og það var allt annað að sjá til liðsins í kvöld. „Ég veit ekki hvað gerist á þessari viku hjá okkur. Ef ég vissi það þá myndum við vinna alla leiki," sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar, virkilega ánægður eftir leikinn í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn