Lífið

Ber bleiku slaufuna með stolti

Ragnheiður I. Margeirsdóttir, hönnuður bleiku slaufunnar 2010, Ágústa Erna Hilmarsdóttir, Guðbjartur Hannesson og Stefanía Guðmundsdóttir. MYNDIR/Hreinn Magnússon
Ragnheiður I. Margeirsdóttir, hönnuður bleiku slaufunnar 2010, Ágústa Erna Hilmarsdóttir, Guðbjartur Hannesson og Stefanía Guðmundsdóttir. MYNDIR/Hreinn Magnússon

Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag. Félagið sett sér það markmið að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur.

Í ár var í fyrsta sinn haldin samkeppni um hönnun bleiku slaufunnar og bar Ragnheiður I. Margeirsdóttir sigur úr býtum. Var slaufan afhjúpuð við athöfn í heilbrigðisráðuneytinu í gær.

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra afhenti fyrstu slaufurnar þremur konum sem allar hafa barist við krabbamein. Þær heita Stefanía Guðmundsdóttir, Ágústa Erna Hilmarsdóttir og Guðný Kristrún Guðjónsdóttir.

„Þær Stefanía, Ágústa Erna og Guðný Kristrún fá fyrstu slaufurnar því að í okkar augum eru þær hvunndagshetjur, venjulegar konur sem þurfa að horfast í augu við erfiðan sjúkdóm," sagði Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra við athöfnina.

„Þær eru á ólíkum aldri og berjast við ólík krabbamein en eiga það sameiginlegt að sýna mikið hugrekki og dugnað í að sinna málum er varða þá sem greinast með krabbamein."

Hann þakkaði Krabbameinsfélaginu fyrir ötula baráttu í gegnum tíðina. Enn mætti þó gera betur og hvatti hann alla landsmenn til að kaupa bleiku slaufuna og kvaðst sjálfur myndi bera hana með stolti í október, til stuðnings góðu málefni.

Á hverju ári velur Krabbameinsfélagið eitt hús á höfuðborgarsvæðinu til að lýsa upp í tilefni átaksins og var Menntaskólinn í Reykjavík baðaður bleiku ljósi í gær eins og myndirnar sýna einnig.






Tengdar fréttir

Sigurvegari Bleiku slaufunnar 2010 - myndband

„Þetta er alveg þvílíkt flott fjöður í hnappagatið," sagði Ragnheiður Ingibjörg Margeirsdóttir vöruhönnuður sem sigraði samkeppnina um Bleiku slaufuna 2010. Á áttunda tug tilllagna bárust í keppnina sem haldin er af Krabbameinsfélagi Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands, en samhliða tilkynningu á sigurvegara var efnt til sýningar á völdum tillögum sem bárust í keppnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.