Logi fer í pásu eftir Haukaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2010 22:13 Logi á ferðinni í kvöld. Mynd/Daníel
Logi Geirsson ætlar að taka sér hvíld frá handbolta eftir leik FH og Hauka á þriðjudaginn. Logi hefur verið að drepast í öxlinni upp á síðkastið, hefur ekkert getað æft og ekkert getað skotið í leikjunum. "Ég ætla að taka Haukaleikinn og svo er ég farinn í meðferð. Ég er bara kominn í pásu. Ég er farinn að sjá landsliðið og HM í hyllingum. Ég er búinn að vera með mikla verki í öxlinni og ég get ekkert æft. Ég mæti í leiki og það hefur áhrif á liðið og búið að gera það í síðustu leikjum," segir Logi. "Það tekur svolítið á mig hvernig gengið er búið að vera því ég er ekki búinn að ná mér á strik. Ég er búinn að tala við stjórnina hjá FH og þjálfarateymið og ætla taka pásu eftir leikinn á móti Haukum. Ég fer í framhaldinu í sprautumeðferð," segir Logi. "Ég get ekki gert sjálfum mér það að vera alltaf að drepast í öxlinni. Ég vildi vera tíu marka maður í leik og drífa þetta áfram og það var ætlast til þess af mér. Ég er ekki að gera neinum greiða með því að geta ekki skotið á markið. Ég kalla mig keilarann í liðinu núna," sagði Logi í léttum tón. "Það er óákveðið hvað ég verð lengi frá. Ég fer bara í sprautumeðferð og svo er ég er bara að vona að þetta lagist. Ég vakna alla morgna með verki í öxlinni og það er farið að verða svolítið dýrt. Ég ætla að einbeita mér að því að ná mér góðum. Þetta er langt tímabil en HM er komið í mjög mikla móðu hjá mér núna," segir Logi. "Það eru viss vonbrigði en ég hætti ekki fyrr en að við klárum Haukana. Við tókum þá á Ásvöllum og það verður gaman að spila við þá í Kaplakrika," sagði Logi að lokum
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira