Sturla: Okkur langaði meira í sigurinn Elvar Geir Magnússon skrifar 12. desember 2010 18:57 „
Við erum að ná að binda vörnina saman og þá erum við komnir með stöðuga markvörslu. Með svona vörn og markvörslu erum við illviðráðanlegir," sagði Sturla Ásgeirsson leikmaður Vals eftir tíu marka sigurinn gegn HK. Valsmenn eru komnir með þrjá sigurleiki í röð.„Við vorum komnir eins langt niður á botninn og við gátum nánast komið. Við töpuðum mörgum leikjum illa en það hefur verið stígandi í þessu jafnt og þétt. Þó við höfum tapað gegn Akureyri og FH hefur verið stígandi," sagði Sturla. „Mér fannst þessi sigur í dag aldrei vera í hættu. Þeir voru bara kraftlausir og okkur langaði meira í sigurinn í dag. Við náðum honum með tíu marka mun, það er frábært." „Stemningin hefur alveg verið góð í hópnum en nú eru menn komnir með smá blóð á tennurnar. Það hefur tekið óþarflega langan tíma að slípast saman en ég tel okkur mjög gott lið og við getum miklu betur en við höfum sýnt." Síðasti leikur Vals fyrir jól er gegn Fram næsta fimmtudag. „Framarar hafa spilað frábærlega í síðustu leikjum og er svakalegur gangur á þeim. Við erum ekkert smeykur og þessir leikir hafa alltaf verið svaka rimmur," sagði Sturla. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, telur Fram vera besta lið deildarinnar. „Framararnir eru að mínu mati bestir í dag og ég fer ekkert ofan að því. Þeir eru með mestu breiddina og unnu okkur 40-23 síðast. Við ætlum að hefna fyrir það. Það verður erfitt," sagði Óskar.
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira