Bjarnfreðarson orðin næsttekjuhæst 21. desember 2010 07:00 Kvikmyndin Bjarnfreðarson er næsttekjuhæsta mynd Íslandssögunnar á eftir Mýrinni.
Kvikmyndin Bjarnfreðarson er næsttekjuhæsta mynd Íslandssögunnar samkvæmt tölum frá Smáís, samtökum myndrétthafa. Alls hefur myndin halað inn um 78 milljónir króna síðan hún var frumsýnd 26. desember í fyrra. Þar með slær hún út mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Engla alheimsins, sem náði inn tæpum 68 milljónum árið 2000. Ef miðað er við áhorfendafjölda er Bjarnfreðarson aftur á móti í þriðja sæti á eftir Englum alheimsins. Um 67 þúsund manns fóru á Bjarnfreðarson í bíó á meðan 82 þúsund manns sáu Engla alheimsins. „Þær eru ekki margar þessar íslensku bombur sem koma í bíó," segir Snæbjörn Steingrímsson hjá Smáís um árangur Bjarnfreðarson. „Meðaltalið á þessar íslensku myndir í ár var gott. Þetta eru farnar að vera flottar myndir og flóran virðist vera miklu vandaðri en áður." Mýrin sem var frumsýnd 2006 er bæði tekju- og aðsóknarmesta mynd Íslands síðan opinberar mælingar hófust. Hún halaði inn tæpa 91 milljón króna og laðaði til sín um 84 þúsund áhorfendur. Bjarnfreðarson er í fjórða sæti yfir tekju- og aðsóknarmestu myndir þessa árs. Skammt undan henni er önnur íslensk mynd, Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið. Tekjur hennar nema tæpum 39 milljónum króna og tæplega 38 þúsund manns hafa borgað sig inn á hana.- fb
Lífið Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira