Beðið eftir Björk Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 13. febrúar 2010 07:45 Áhrifamikið samstarf Breskir og bandarískir fjölmiðlar segja samstarf <B>Bjarkar</B> og <B>Alexanders McQueen </B>hafa haft mikil áhrif en McQueen hannaði umslagið að Homogenic, leikstýrði og hannaði kjólinn í Alarm Call og á heiðurinn að hinum fræga bjöllukjól. Björk hefur ekki tjáð sig um andlát McQueens en fjölmiðlar bíða eftir yfirlýsingu frá henni og Lady Gaga, nánum viðskiptavini McQueens.
Fyrirsætur, rokkstjörnur og áhrifafólk á borð við Michelle Obama hafa lýst yfir mikilli sorg vegna fráfalls hönnuðarins Alexanders McQueen. Fjölmiðlar í Bretlandi og Bandaríkjunum bíða eftir yfirlýsingu frá íslensku söngkonunni Björk Guðmundsdóttur og Lady Gaga vegna sviplegs fráfalls breska hönnuðarins Alexanders McQueen. Lady Gaga var einn nánasti viðskiptavinur McQueens og hafa heimildarmenn innan herbúða hennar látið hafa eftir sér að hún sé einfaldlega í of mikilli sorg til að geta tjáð sig um andlát McQeens. Heimildir Fréttablaðsins segja að Björk sé á fullu að semja nýtt efni og lokuð inni í hljóðveri. Og því hefur það reynst erfitt að ná tali af henni.Bjöllukjóll Bjarkar eftir Alexander Mc Queen.Flestir fjölmiðlar virðast vera sammála um að Björk Guðmundsdóttir eigi stóran þátt í velgengni Alexanders McQueen; hún hafi fengið hann til að hanna kjólinn framan á Homogenic 1997 en þá var McQueen nýbyrjaður sem yfirhönnuður Givenchy-tískuhússins. Blaðamaður New York Post segir að einn af hápunktum ferils McQueens hafi án nokkurs vafa verið Fashion Rocks-sýningin árið 2003 í Royal Albert Hall þar sem Björk söng lag sitt Bachelorette og fyrirsætur sýndu nýjustu línu hönnuðarins. MTV birti síðan í gær sérstaka grein tileinkaða samstarfi Bjarkar og Alexanders McQueen en þar er því haldið fram að hönnunin á Homogenic sé eitt af mestu verkum hönnuðarins. Blaðamaður Wall Street Journal segir að vissulega sé Lady Gaga hálfgerður opinber talsmaður Alexanders í dag en það hafi verið Björk sem ruddi veginn. Blaðamaðurinn gerir sérstaklega mikið úr myndbandinu Alarm Call sem McQueen leikstýrði eftir samnefndu lagi en þar klæddist Björk einmitt kjól frá Bretanum sem seldur var á uppboði hér árið 2008.
Björk Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira