Formúlu kappi nærri gini hákarls 24. mars 2010 17:30 Paul di Resta spottaði hákarl í sex feta fjarlægð frá sér í Melbourne. Mynd: Getty Images
Paul di Resta sem keyrir Formúlu 1 bílí fyrsta skipti á æfingum í Melbourne á föstudag fékk aðra frumraun í flasð í dag. Hann stóð nærri hákarli á strönd við Melbourne, sem var kannski ekki besta auglýsingin fyrir ferðamennskuna á staðnum. Hákarlinn hafði fest sig í flæðarmálinu. "Þetta er í fyrsta skipti sem ég kem til Ástralíu og í fyrsta skipti sem ég fer á ströndina. Innan tveggja mínútna var ég búinn að sjá hákarl, sem færði mér ekki aukið sjálfstraust til að taka sundsprett", sagði Paul Di Resta sem ekur með Force India á æfingum og er varaökumaður liðsins fyrir þá Adrian Sutil og Viantonio Liuzzi. Hann hefur m.a. keppt í 3 ár í DTM mótaröðinni þýsku með ágætum árangri. Hann var undir handleiðslu Mercedes, sem útvegar einmitt Force India vélum í Formúlu 1. "Þetta var nokkuð stór hákarl, var eitthvað fastur. Hann var aðeins í sex feta fjarlægð frá okkur. Ég held að hollenskur sjónvarpsmaður hafi losað hann úr prísundinni, en ég var sá fyrsti til að taka eftir honum. Hann synti þarna í 10 mínútur og löggan mætti á þyrlu til að kanna málið." Óvenjuleg byrjun á annasamri vinnuviku fyrir di Resta sem keyrir Force India bílinn á föstudag. "Vonandi get ég sýnt liðinu hvað í mér býr í keppni í framtíðinni. Núna er málið að fá reynslu á mismunandi brautum, þannig ef tækfiæri gefst að keyra, þá er ég tilbúinn. Mig hlakkar til að keyra bílinn, en kannski bagalegt fyrir ökumennina sem fá ekki allan þann æfingatíma sem er í boði", sagði di Resta.
Mest lesið Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Fótbolti Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Fleiri fréttir Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira