Pálmi Rafn skoraði og fékk rautt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. október 2010 18:08 Pálmi Rafn Pálmason í leik með íslenska landsliðinu árið 2008. Mynd/Daníel
Pálmi Rafn Pálmason og Indriði Sigurðsson voru á skotskónum með liðum sínum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Pálmi Rafn skoraði eina mark Stabæk er liðið mátti þola 2-1 tap fyrir Haugasund. Pálmi kom Stabæk yfir á 9. mínútu en Haugesund skoraði tvívegis um miðbik fyrri hálfleiksins og hélt forystunni allt til loka. Til að bæta gráu á svart fékk Pálmi Rafn sína seinni áminningu í leiknum á 69. mínútu og þar með rautt. Veigar Páll Gunnarsson var einnig í byrjunarliði Stabæk í dag en var tekinn af velli á 82. mínútu. Indriði Sigurðsson, leikmaður Viking, skoraði fram hjá félaga sínum í íslenska landsliðinu, markverðinum Árna Gauti Arasyni í dag. Árni Gautur og félagar í Odd Grenland fögnuðu þó að lokum sigri, 2-1. Indriði jafnaði metin fyrir Viking á 48. mínútu en Odd Grenland endurheimti forystuna aðeins átta mínútum síðar. Þeir léku báðir allan leikinn, rétt eins og Birkir Bjarnason í liði Viking. Þá vann Lilleström 3-2 sigur á Brann á sama tíma. Enginn Íslendingur var á skotskónum í þeim leik en Stefán Logi Magnússon og Björn Bergmann Sigurðarson voru báðir í byrjunarliði Lilleström í dag. Björn Bergmann var tekinn af velli á 74. mínútu. Birkir Már Sævarsson var í byrjunarliði Brann og var tekinn af velli í blálok leiksins. Gylfi Einarsson var á bekknum hjá Brann og kom ekki við sögu en hann er á sínu síðasta tímabili í Noregi og mun spila með Fylki í Pepsi-deild karla á næstu leiktíð.Það var einnig leikið í norsku B-deildinni í dag. Nybergsund og Bryne gerðu 2-2 jafntefli en Guðmann Þórisson lék allan leikinn með fyrrnefnda liðinu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Sjá meira