Er nýtt ofur-þríeyki í pípunum í NBA-deildinni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2010 20:30 Mynd/AFP
Miami Heat teflir fram mögnuðu þríeyki í NBA-deildinni í körfubolta næstu árin eftir að LeBron James og Chris Bosh ákváðu að ganga til liðs við Dwyane Wade í Miami. Nú gætu þeir fengið samkeppni frá öðru mögulegu þríeyki eftir næsta tímabil. Leikstjórnandinn Chris Paul hélt athyglisverða ræðu í brúðkaupi Carmelo Anthony í New York um helgina þar sem að hann ýjaði að því að hann og Anthony gætu hugsanlega spilað með Amar'e Stoudemire hjá New York Knicks í framtíðinni. Samningur Carmelo Anthony við Denver Nuggets rennur út næsta sumar og Chris Paul vill fara frá New Orleans Hornets til liðs sem á meiri möguleika á að berjast um titilinn. New York Post hafði það eftir gestum brúðkaupsins að Paul hafi sagt í ræðu sinni: „Við munum búa til okkar eigið þríeyki," sagði Paul en hann og Carmelo Anthony léku saman í bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking. Það þykir lítið kraftaverk að Pat Riley hafi tekist að ná í þá LeBron James og Chris Bosh til Miami sem og að semja aftur við Dwyane Wade en það þarf víst enn stærra kraftaverk til þess að þeir Chris Paul og Carmelo Anthony gætu komið til New York. Það er samt aldrei að vita því enginn bjóst við því að LeBron og Wade myndu spila einhvern tímann saman.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira