Íslenski boltinn

Veigar fór ekki með til Kýpur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Anton

Styrkur íslenska landsliðsins sem leikur á Kýpur á miðvikudag fer þverrandi en nú síðast gekk Veigar Páll Gunnarsson úr skaftinu.

Veigar Páll á við veikindi að stríða og getur því ekki ferðast. Sautján leikmenn fóru til Kýpur og verður ekki bætt við hópinn.

Áður höfðu Eiður Smári Guðjohnsen, Hermann Hreiðarsson, Grétar Rafn Steinsson og Brynjar Björn Gunnarsson dottið úr hópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×