Viðskipti erlent

Innbrotsþjófar nýta sér Facebook

Eitt af stærstu öryggisfyrirtækjum heimsins, G4S, hefur gefið út aðvörun um að innbrotsþjófar nýti sér nú Facebook í auknum mæli. Því eigi notendur Facebook ekki að fjalla um það á vefsíðunni hvenær þeir ætli að taka sér frí eða hvenær þeir verði að heiman.

„Innbrotsþjófar rannsaka gjarnan hverfi og götur áður en þeir láta til skarar skríða. Og þeir hafa fyrir löngu fundið möguleikana á Facebook sem hundrað þúsund Danir á öllum aldri nota til að skiptast á fréttum, upplýsingum og til að spjalla," segir Per Bloch-Frederiksen markaðsstjóri G4S í samtali við Jyllands-Posten.

„Fólk skal því sleppa því að greina frá hvenær fjölskyldan ætlar í sumarfrí á þessum eða hinum dögum. Slíkt er boðsmiði að innbroti," segir Frederiksen.

Samkvæmt upplýsingum frá tryggingarfélögum eru framn 20-25% fleiri innbrot í júlímánuði í Danmörku en í júní eða ágúst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×