Messi-áhrifin úr sér gengin hjá Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2009 16:06 Lionel Messi og félagar töpuðu öðrum leiknum í röð.
Velgengni Argentínumannsins Lionel Messi hjá Barcelona hefur verið engu lík en um helgina gerðist það í fyrsta sinn að Barcelona-liðið tapaði leik þar sem Messi skoraði. Messi skoraði nefnilega eitt marka Barca í 3-4 tapi fyrir Atletico Madrid á útivelli í gær. Fyrir leikinn um helgina var Messi búinn að skora í 50 keppnisleikjum fyrir Börsunga og hafði liðið unnið 44 þeirra og gert 6 jafntefli. Af þessum 50 leikjum voru 35 í deildinni, 11 í Meistaradeildinni og 4 í bikarkeppninni. Það leit vel út fyrir toppliðið þegar Lionel Messi kom þeim í 2-0 á 30. mínútu leiksins en tvö mörk frá Úrúgvæanum Diego Forlan og önnur tvö frá landa Messi, Sergio Agüero, tryggðu heimamönnum í Atletico ótrúlegan 4-3 sigur. Barcelona hefur nú tapað tveimur leikjum í röð í spænsku úrvalsdeildinni, 1-2 á móti nágrönnunum í Espanyol og svo 3-4 á móti Atletico Madrid um helgina. Fram að þessum tveimur ósigrum hafði Barcelona leikið 22 deildarleiki án þess að tapa og unnið 19 þeirra. Lionel Messi hefur alls skorað 26 mörk fyrir Barcelona á tímabilinu þar af 17 þeirra í spænsku deildinni. Hann er eins og er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Diego Forlan en aðeins Samuel Eto'o hjá Barca (23 mörk) og David Villa hjá Valencia (19 mörk) hafa skorað meira en Messi í deildinni í vetur.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Fótbolti Fleiri fréttir Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Frakkland - Marokkó | Átta liða úrslitin hefjast Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Fram - Breiðablik | Topplið sækir botnlið heim Þór/KA - Grindavík/Njarðvík | Nýliðar fyrir norðan FH - Þróttur R. | Hörkuslagur í Hafnarfirði Stjarnan - Víkingur Götu | Evrópuævintýrið hefst Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga María að gera Þóri að afa Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Sjá meira