Gættu þín góða mín 23. apríl 2009 00:01 Fyrir skemmstu rak ég augun í auglýsingu í blaði þar sem líkamsræktarstöð auglýsti sumarkort í ræktina. Þetta var heilsíðu auglýsing þar sem stór mynd þakti síðuna og svo fylgdi einhver texti sem gaf til kynna verð og annað. Þetta var ágætis tilboð, en það sem vakti þó athygli mína var hvernig auglýsingin var myndskreytt en síðuna þakti stór mynd af sólbrúnum kvenmannsrassi í eldrauðum þvengbuxum. Á bera rasskinnina var búið að stimpla svörtum stöfum „sýndu þig í sumar!“ Ég veit ekki til hverra auglýsingin átti að höfða en mér þykir sennilegt að stöðin vilji ná til beggja kynja. Ég geri ráð fyrir að augu karlmanna hafi stöðvast við þessa mynd og jafnvel virkað hvetjandi á þá að kaupa sér kort í einmitt þessari rækt. Augu mín stöðvuðust einnig við myndina, en ég fór sannarlega ekki að hugsa um að kaupa mér líkamsræktarkort. Alla daga dynja á okkur skilaboð um hvernig holdafar og útlit stúlkna skuli vera og skilaboðin sem þarna voru stipmluð á rass sögðu okkur beinlínis að fara úr og sýna sem mest hold í sumar. Sýna hverjum? Fyrir stúlkur er vandlifað því ekki einungis eiga þær að líta út á ákveðinn hátt, það er heldur ekki sama hvernig þær haga sér. stuttu áður hafði ég nefnilega séð aðra auglýsingu. Úr henni mátti lesa þau skilaboð til stúlkna að ef þær drykkju ekki áfengi væru minni líkur á að þeim yrði nauðgað. Þeirri auglýsingu er þó búið að breyta og biðjast velvirðingar á eftir viðbrögðin sem hún fékk. Það er gott því það verður að eyða þeim hugsunarhætti að það að nauðga sé viðurkennd hegðun karlmanna við vissar aðstæður, sem konur verði bara að passa sig á, til dæmis með því að drekka ekki áfengi. En þó eiga þær að sýna meira hold í sumar... Ég botna ekkert í þessu og finnst þetta ósanngjörn skilaboð. Hvernig eiga ungar stúlkur að finna út úr þessu öllu saman þegar krafist er af þeim að þær séu bæði sætar og eggjandi en gangi þær of langt er sjálfsagt að búast við því að þær verði fyrir ofbeldi? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun