Keflavíkurkonur snéru leiknum við í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2009 19:27 Bryndís Guðmundsdóttir fór á kostum á móti Hamar í kvöld. Mynd/Stefán
Keflavíkurkonur létu ekki slæma byrjun koma í veg fyrir að þær héldu sigurgöngu sinni áfram í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Keflavík vann 72-53 sigur á Hamar en þetta var fjórði sigurleikur liðsins í röð. Keflavík skoraði bara 14 stig fyrstu 17 mínútur leiksins og klikkaði á 19 af fyrstu 22 skotunum sínum. Hamar komst á meðan í 24-12 og var síðan 26-22 yfir í hálfleik. Frábær sprettur í þriðja leikhluta breytti hinsvegar öllu, Keflavíkurliðið skoraði 14 stig í röð og breytti stöðunni úr 26-35 í 40-35 á rúmum fimm mínútum. Keflavíkurliðið leit ekki til baka eftir það og vann seinni hálfleikinn á endanum með 23 stigum, 50-27. Keflavík náði þó ekki að vinna upp 20 stiga tap liðsins í Hveragerði og Hamar er því enn með betri innbyrðisstöðu verði liðin jöfn að stigum í töflunni. Bryndís Guðmundsdóttir átti enn einn stórleikinn með Keflavíkurliðinu en liðið hefur unnið 4 af 5 leikjum sínum síðan að hún kom inn í liðið. Bryndís var með 23 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar í kvöld.Keflavík-Hamar 72-53 (22-26)Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 23, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 15, Kristi Smith 13, Marín Rós Karlsdóttir 7, Svava Ósk Stefánsdóttir 6, Rannveig Randversdóttir 4, Hrönn Þorgrímsdóttir 2, Sigrún Albertsdóttir 2.Stig Hamars: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19, Koren Schram 14, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Fanney Lind Guðmundsdóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Jenný Harðardóttir 2, Hafrún Hálfdánardóttir 1.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira