Körfubolti

KR tapaði í Kína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tommy Johnson, leikmaður KR.
Tommy Johnson, leikmaður KR. Mynd/Stefán

KR tapaði í morgun fyrir Beijing Aoeshen í sýningarleik sem fór fram í Chengdu. Lokatölur voru 101-73.

KR-ingar spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og voru aðeins sjö stigum undir þegar síðari hálfleikur hófst, 50-43.

Heimamenn sigu svo fram úr í síðari hálfleik en fram kemur á heimasíðu KR að sigurinn hafi verið helst til stór.

Þreyta sagði til sín hjá leikmönnum KR undir lokin enda langt ferðalag að baki og leikurinn 48 mínútur, líkt og í NBA-deildinni.

Tommy Johnson skoraði 22 stig fyrir KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×