Erum ekki komnir með bikarinn þó við höfum unnið þennan leik 25. janúar 2009 10:15 "
Þetta var bara þetta klassíska hjá okkur, við erum að fara þetta á vörninni," sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR við Vísi eftir 82-70 sigurinn á Grindavík í bikarnum í gær. "Við vorum að halda flestum leikmönnum þeirra ágætlega niðri nema kannski Nick Bradford, en ég var ekkert að hafa stórar áhyggjur af honum á meðan við héldum hinum sæmilega í skefjum. Við vorum ekkert að örvænta þó hann væri að skora aðeins á okkur og lögðum áherslu á að stöðva skytturnar fyrir utan," sagði Benedikt og var ánægður með að vinna baráttuna um fráköstin. "Þetta er sá leikur sem við undirbjuggum okkur best fyrir í vetur og greindum leik andstæðinganna alveg niður í öreindir. Vörnin hjá okkur í síðustu tveimur leikjum var ekki alveg nógu góð, þannig að við ákváðum að kafa djúpt í þetta aftur og fara í smáatriðin," sagði Benedikt, sem enn á eftir að upplifa tap í vetur með sterku KR-liðinu. Hann hlakkar mikið til að spila til úrslita í Laugardalshöllinni þann 15. febrúar. "Það er ekkert gaman að fara í Höllina nema vinna. Það er eins og að spila Superbowl að fara í þennan úrslitaleik en það langar engan að fara þaðan með tap. Það eru komin átján ár síðan KR þarna svo ég held að sé alveg kominn tími á það. Það er engu að síður langur vegur frá því að við séum komnir með bikar þó við höfum unnið þennan leik í dag."
Dominos-deild karla Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Körfubolti Gunnar Nelson með augun á bardaga í ár Sport Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fótbolti „Sorgmæddur en stoltur“ Fótbolti Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Körfubolti Fleiri fréttir Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks „Þeir geta klárað þetta án mín“ Tekur tólf leikmenn með til Serbíu Sjá meira