Lífið heldur áfram án Helenu 6. janúar 2009 13:48 Kristrún Sigurjónsdóttir með verðlaunagripinn í dag Mynd/Stefán "
Þetta er að sjálfssögðu bara liðinu að þakka. Við erum með frábært lið og það hjálpar mér að spila vel," sagði Kristrún Sigurjónsdóttir, besti leikmaður fyrstu 11 umferða Iceland Express deildar kvenna í körfubolta. Kristrún hefur átt frábært tímabil með toppliði Hauka það sem af er. Hún skorar að meðaltali 21,5 stig, hirðir 5,5 fráköst, gefur tæpar 4 stoðsendingar og stelur 3,1 bolta í leik. "Við erum á toppnum sem stendur en erum ekki búnar að vinna neitt þó við séum á toppnum. Stefnan hjá okkur er bara að halda þessu góða gengi áfram," sagði þessi hógværi leikmaður í samtali við Vísi í dag. Margir reiknuðu með því að brotthvarf Helenu Sverrisdóttur yrði Haukaliðinu gríðarleg blóðtaka, en það er engu að síður á toppnum þrátt fyrir að missa bestu körfuknattleikskonu landsins til Bandaríkjanna. "Við tókum smá dýfu eftir að Helena fór en nú erum við búnar að byggja upp gott lið án hennar og ég vona að við höldum því áfram. Það er fullt af efnilegum stelpum hjá okkur, ekki síst stóru stelpurnar sem eru að spila inni í teig eins og Ragna Margrét (Brynjarsdóttir) og Telma (Fjalarsdóttir). Ég er virkilega ánægð með þær. Þær sjá um að hirða fráköstin og hjálpa mér að skora," sagði Kristrún og vísaði óspart í félaga sína í Haukaliðinu.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira