Mourinho: Ég væri til í að taka við Manchester United Ómar Þorgeirsson skrifar 28. júlí 2009 09:30 José Mourinho. Nordic photos/AFP
Knattspyrnustjórinn málglaði José Mourinho hjá Ítalíumeisturum Inter hefur viðurkennt að hann sé meira en til í að taka við Manchester United. Forráðamenn Englandsmeistaranna þurfi bara að ákveða hvort að þeir vilji fá sig þegar Sir Alex Ferguson ákveði loks að hætta en hinn 67 ára gamli Skoti hefur látið í ljós að hann vilji hætta árið 2012. „Ég væri til í að taka við Manchester United en forráðamenn félagsins verða að ákveða hvort að það eigi að verða um leið og Ferguson ákveður að hætta. Ef svo færi þá væri ég til, að sjálfsögðu. Ég elska England og enskir stuðningsmenn eru frábærir og búa til mjög sérstakt andrúmsloft," er haft eftir Mourinho í Daily Mirror. Það hefur heldur ekki farið framhjá Mourinho að Chelsea hefur mistekist að vinna ensku úrvalsdeildina eftir að hann hætti hjá félaginu fyrir tveimur árum. „Ég og Chelsea áttum mörg samtöl saman áður en ég ákvað að sækja um skilnað. Það var erfitt því við elskuðum hvort annað en ákváðum á endanum að fara hvort í sína áttina og ég held að það hafi verið fyrir bestu. Ég held hins vegar áfram að vera meistari en félagið ekki. Það er athyglisvert," segir Mourinho.
Ítalski boltinn Mest lesið Í beinni: Slóvenía - Ísland | Leikur sem skiptir öllu máli Handbolti Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Handbolti Hitað upp í Zagreb fyrir risaleik við Slóvena Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Gætið ykkar: Nýi Balic sem fékk ekki númerið hans Arons Handbolti „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Spjót beinast að Degi sem segir orðróm um rifrildi rangan Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti Fleiri fréttir Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Í beinni: Chelsea - Wolves | Lýkur langri bið heimamanna? Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Denis Law látinn Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga City búið að finna sinn Salah? Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Foden: Við erum ekki heimskir, titillinn er farinn Arsenal kom til baka og vann slaginn um Norður-London Isak áfram í stuði og Moyes tapaði fyrsta leik Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Sjá meira