Bara helmingur í hús 18. febrúar 2009 00:01 Móðurfélag hlutabréfamarkaðarins í Dúbaí leitar logandi ljósi að endurfjármögnun á láni vegna yfirtöku á sænsku kauphallarsamstæðunni OMX.Markaðurinn/AFP
Allt stefnir í að Borse Dubai, sem rekur kauphöllina í Dúbaí, nái aðeins að endurfjármagna helming þess láns sem tekið var vegna yfirtöku á sænsku kauphallarsamstæðunni OMX síðla árs 2007. Lánið er á gjalddaga í lok mánaðar og hljóðar upp á 2,5 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 285 milljarða íslenskra. Bloomberg-fréttaveitan hefur eftir heimildum að nýja lánið, sem verið sé að semja um, hljóði upp á 1,1 til 1,5 milljarða dala. Það sé með 325 punkta álagi yfir Libor-vöxtum að viðbættu allt að 200 punkta álagi. Til samanburðar var álagið á fyrra láninu 130 punktar. Innan OMX var Kauphöll Íslands. Eftir yfirtökuna sömdu Borse Dubai og bandaríski Nasdaq-markaðurinn um sameiningu undir einu merki. Arabíska félagið á um fimmtungshlut í Nasdaq OMX. Bloomberg bendir á að staða Dúbaí sé óburðug eftir hraða uppbyggingu síðustu árin sem knúin hafi verið áfram af lántökum. Ljóst sé að fleiri ríkisfyrirtæki verði að feta í fótspor Borse Dubai því lán upp á fimmtán milljarða dala sé á gjalddaga í ár.
Erlent Markaðir Viðskipti Mest lesið Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Atvinnulíf ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Sjá meira