Körfubolti

Logi í viðræðum við franskt félag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Gunnarsson körfuboltakappi.
Logi Gunnarsson körfuboltakappi. Mynd/Anton

Logi Gunnarsson, körfuboltakappi úr Njarðvík, á nú í viðræðum við franskt félagslið. Það kemur í ljós um helgina hvort hann semji við félagið.

„Umboðsmaðurinn minn á nú í viðræðum við þetta félag og þetta mál er eiginlega í biðstöðu þar til um helgina," sagði Logi í samtali við Vísi.

„En það var alltaf planið mitt að koma heim í eitt ár og fara svo aftur út. Mér líst vel á þetta félag, en það leikur í næstefstu deild og var eitt af betri liðunum þar síðasta vetur."

Logi hefur áður leikið meðal annars í Þýskalandi, Finnlandi og Spáni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×