Gerði nýja hárgreiðslan gæfumuninn fyrir Slavicu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2009 18:15 Slavica Dimovska (til vinstri) og nýja hárgreiðslan hennar. Mynd/Anton
Leikmenn beita oft ýmsum aðferðum til að koma sér í gang þegar illa gengur. Haukakonan Slavica Dimovska, besti leikmaður seinni hluta deildarkeppninnar, var búin að hitta illa í úrslitakeppninni en það breyttist í öðrum leik lokaúrslitanna. Slavica mætti með nýja hárgreiðslu að amerískum stíl þar sem hún stíf-fléttaði allt hárið aftur. Það virkaði vel enda var hárið ekkert að flækjast fyrir henni í langskotunum. Slavica hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og var með 18 stig og 6 stoðsendingar í mikilvægum sigri en með honum náði Haukaliðið að jafna einvígið og vinna til baka heimavallarréttinn sem tapaðist í fyrsta leiknum. Slavicu hafði gengið illa að hitta fyrir utan í leikjunum áður en hún skellti sér á þessa nýju hárgreiðslu. Hún hafði sem dæmi aðeins hitt úr 30 prósent þriggja stiga skota sinna í úrslitakeppninni og skoraði 13,8 stig að meðaltali í leik sem er talsvert undir meðaltölum hennar í vetur. Þriðji leikur Hauka og KR í lokaúrslitum Iceland Express deildar kvenna fer fram á eftir á Ásvöllum og hefst klukkan 19.15. Slavica mætir örugglega aftur með amerísku flétturnar og lætur reyna á það hvort að það hafi verið nýja hárgreiðslan sem gerði gæfumuninn.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira