Sigurður Ingimundarson: Verð að fá að gera hlutina eins og ég sem um Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2009 16:09 Sigurður Ingimundarson fyrrum þjálfari Solna Vikings. Mynd/Arnþór
Sigurður Ingimundarson hætti í dag sem þjálfari sænska körfuboltaliðsins Solna Vikings en hann var aðeins búinn að stjórna liðinu í tveimur leikjum. Ástæðan er stefna félagsins. Sigurður segist hafa viljað byggja upp sitt lið með sínum áherslum en forráðamenn Solna vilja að hans mati kaupa árangur með að fá til sín sterkari Bandaríkjamenn. „Ég fann bara það að við erum ekki að gera það sem við ætluðum að gera. Ég kom hingað til að byggja upp lið og breyta um hugsunargang og þeim veitir ekkert af því. Það var eitthvað sem þeir vildu ekki að gera. Ég sagði bara að ég væri farinn því þetta væri ekki að virka. Mínum tíma er betur varið að í að gera eitthvað uppbyggjandi," sagði Sigurður í samtali við Vísi. „Ég hefði alveg getað verið þarna og klárað þetta en ég verð að vera sáttur og þeir verða að standa við það sem þeir sögðu mér fyrst. Liðið átti að vera á leiðinni eitthvað en þeir eru ekki á leiðinni neitt. Ég sagði þá að það væri betra að ég færi strax heldur en að ég verði ósáttur," sagði Sigurður og hann hefur þrátt fyrir allt trú á liðinu. „Það eru bara tveir leikir búnir, við höfðum pottþétt staðið okkur og þetta lið á eftir að standa sig," segir Sigurður sem segist fara fljótlega að leita sér að öðru starfi sem körfuboltaþjálfari. „Þeir eru mjög leiðir og vildu að þetta væri öðruvísi. Þetta er samt allt gert í mestu vinsemd og bróðerni," sagði Sigurður en lengra viðtal birtist við hann í Fréttablaðinu á morgun.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu, Suðurnesjaslagur og van Gerwen mætir til leiks Sport Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira