Sjötugur Böðvar skrifar nýja bók 6. janúar 2009 05:00 Fjöldi góðra vina Böðvars Guðmundssonar kemur að skipulagningu afmælisveislunnar sem fram fer í Íslensku óperunni 11. janúar.
Blásið verður til mikillar veislu í íslensku óperunni 11. janúar þegar rithöfundurinn Böðvar Guðmundsson verður sjötugur. Fjöldi landsþekktra leikara mun lesa upp úr verkum Böðvars og skáldið sjálft heiðrar samkomuna með nærveru sinni en hann hefur verið búsettur í Danmörku undanfarinn aldarfjórðung. Kristján Kristjánsson, útgefandi Böðvars hjá Uppheimum, segir rithöfundinn í fullu fjöri. Hann sé nú að skrifa sögulega skáldsögu sem ráðgert er að komi út á þessu ári. „Hún fjallar um skrýtin örlög þýskra tónlistarmanna sem komu hingað til lands á tímum nasisma og seinni heimstyrjaldarinnar og höfðu mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf," útskýrir Kristján sem segir Böðvar vera í fullu fjöri. Í tilefni af afmæli Böðvars verður gefin út Alþýðusöngbókin, safn texta eftir Böðvar sem margir hverjir hafa aldrei verið gefnir út á prenti. „Og það er nú gaman að rifja það upp í þessu sambandi að þegar Böðvar gaf út plötuna Þjóðhátíðarljóð 1974 þá kom Kristinn Sigmundsson óperusöngvari mikið við sögu. Hann söng reyndar voðalega lítið heldur var aðallega í fullu starfi sem undirleikari," segir Kristján.- fgg
Mest lesið Útför Megasar Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira