Landsbankinn styrkti Sjálfstæðismenn um 25 milljónir 8. apríl 2009 18:37 Landsbankinn styrkti einnig flokkinn um heljarinnar upphæð.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að endurgreiða styrki sem þeir fengu frá bæði FL Group, sem nam þrjátíu milljónum króna, og svo Landsbankanum, sem styrkti flokkinn um 25 milljónir króna árið 2006. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem forysta Sjálfstæðisflokksins sendi frá sér. Þar segir jafnframt að flokkurinn hyggist opna bókhaldið sitt frá árinu 2006 og sýna alla styrki sem námu hærra en eina milljón. Eftirfarandi er yfirlýsing flokksins og Bjarna Benediktssonar: Ný forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að flokkurinn skuli endurgreiða styrk frá FL Group frá því í árslok 2006 og jafnframt hefur verið ákveðið að endurgreiða styrk frá Landsbankanum, sem er frá sama tíma. Samtals hljóða þessir styrkir upp á 55 milljónir. Sú ákvörðun hefur ennfremur verið tekin að opna bókhald Sjálfstæðisflokksins yfir alla styrki lögaðila sem bárust á árinu 2006 og nema hærri fjárhæð en einni milljón króna. Nýrri forystu Sjálfstæðisflokksins var ekki kunnugt um fjárstuðning fyrrnefndra fyrirtækja og harmar að gengið skuli hafa verið fram með þessum hætti. Ný forysta leggur áherslu á stuðning sinn við núgildandi lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu um þau, en frumvarp þar að lútandi var lagt fram á Alþingi að frumkvæði Sjálfstæðisflokksins í árslok 2006 og stóðu formenn allra stjórnmálaflokka að því. Þar er kveðið á um það að framlög frá lögaðilum og einstaklingum megi að hámarki vera 300 þúsund, en markmiðið með því er að draga úr hættu á hagsmunaárekstrum og tryggja gagnsæi í fjármálum stjórnmálaflokkanna. Yfirlýsing frá Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins: „Ég harma að Sjálfstæðisflokkurinn hafi veitt styrkjum viðtöku frá einstökum aðilum upp á tugi milljóna. Það stangast gróflega á við þau gildi sem ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn starfi eftir. Ég hef kallað eftir upplýsingum um bókhald flokksins frá þessum tíma og komist að þeirri niðurstöðu að tveir styrkir sem bárust séu óeðlilega háir, annarsvegar frá FL Group og hinsvegar frá Landsbankanum. Það er niðurstaða nýrrar forystu Sjálfstæðisflokksins að skila verði þessum styrkjum. Ég hef því kallað eftir því að bókhald flokksins frá árinu 2006 verði opnað og upplýst um öll fjárframlög frá fyrirtækjum sem eru yfir milljón krónur. Ég skora jafnframt á aðra stjórnmálaflokka að gera slíkt hið sama í þeim tilgangi að eyða öllum vafa um óeðlileg framlög í aðdraganda lagasetningarinnar um fjármál stjórnmálaflokka. Ég tel þessar aðgerðir nauðsynlegt skref til að fjármál Sjálfstæðisflokksins séu hafin yfir vafa og traust ríki í garð flokksins. Þetta er liður í nauðsynlegu uppgjöri innan flokksins og undirstrikar vilja nýrrar forystu til að ganga hreint til verks í þessum efnum sem öðrum."
Kosningar 2009 Tengdar fréttir Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49 Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38 Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10 Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn. 8. apríl 2009 13:17 Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 8. apríl 2009 14:07 FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34 Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00 Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. 8. apríl 2009 17:16 Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. 8. apríl 2009 16:17 FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. 8. apríl 2009 15:43 Bjarni og Þorgerður funda um málið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006. 8. apríl 2009 16:27 Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Fleiri fréttir „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Sjá meira
Stoðir: Upplýsingar ekki frá okkur komnar „Þessar upplýsingar eru ekki frá okkur komnar. Ég hef enga vitneskju um þetta mál og get því hvorki staðfest það né neitað,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, um 30 milljóna króna styrk sem FL Group greiddi til Sjálfstæðisflokksins undir lok ársins 2006. 7. apríl 2009 21:49
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. 7. apríl 2009 21:38
Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. 7. apríl 2009 22:10
Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn. 8. apríl 2009 13:17
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 8. apríl 2009 14:07
FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. 7. apríl 2009 18:34
Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. 8. apríl 2009 12:00
Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. 8. apríl 2009 17:16
Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. 8. apríl 2009 16:17
FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. 8. apríl 2009 15:43
Bjarni og Þorgerður funda um málið Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður eru ekki á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem hófst klukkan 16:00 í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu funda þau um FL-Group málið svokallaða. Á fundinum munu þau vera að fara yfir stöðuna sem upp er komin í kjölfar frétta Stöðvar 2 af 30 milljóna króna styrk FL-Group til Sjálfstæðisflokksins árið 2006. 8. apríl 2009 16:27