Meistararnir bitu frá sér 26. maí 2008 03:50
San Antonio vann í nótt þýðingarmikinn 103-84 sigur á LA Lakers í þriðja leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA og minnkaði muninn í 2-1 í einvíginu. Mestu munaði um að meistararnir fengu gott framlag frá þremur helstu stjörnum sínum í leiknum. Gestirnir frá Los Angeles byrjuðu leikinn vel og fengu gott framlag bæði frá þeim Kobe Bryant og Pau Gasol, sem og varamönnum sínum. Lakers hafði yfir 24-21 eftir fyrsta leikhlutann. Heimamenn tóku við sér í öðrum leikhlutanum sem þeir unnu 28-15 og eftir það héldu þeir í kring um 10 stiga forystu þar til dró endanlega í sundur með liðunum um miðjan fjórða leikhlutann og Spurs náði 20 stiga forystu. Það var Argentínumaðurinn Manu Ginobili sem gerði gæfumuninn hjá San Antonio í nótt, en hann skoraði 19 af 30 stigum sínum í mikilli rispu í fyrri hálfleiknum. Ginobili var slakur í fyrstu tveimur leikjunum í Los Angeles, en hitti úr 5 af 7 þristum sínum í nótt og ógnaði líka með sterkum keyrslum á körfuna. "Ég vissi að hann kæmi sterkur til baka í þessum leik. Hann var frábær í fyrri hálfleiknum," sagði Kobe Bryant um Ginobili. "Manu er rosalegur keppnismaður. Hann axlar mikla ábyrgð og berst í gegn um mótlæti," sagði Gregg Popovich þjálfari San Antonio um Ginobili. Tim Duncan var sömuleiðis frábær hjá San Antonio og skoraði 22 stig og hirti 21 frákast og Tony Parker skoraði 20 stig. Kobe Bryant var atkvæðamestur hjá Lakers með 30 stig og Pau Gasol kom næstur með 15 stig en hitti aðeins úr 7 af 18 skotum sínum. Lamar Odom hitti aðeins úr 2 af 11 skotum sínum og endaði með 7 stig og 9 fráköst. Tölfræði leiksins Lakers-liðið vann upp 20 stiga forskot og vann nauman sigur í fyrsta leik liðanna og burstaði svo meistarana í leik tvö með 30 stigum. Allt annað var að sjá til San Antonio á heimavelli sínum í þriðja leiknum í nótt, en þar hefur liðið ekki tapað leik í úrslitakeppninni og raunar ekki tapað þar síðan 9. apríl þegar liðið tapaði þar fyrir Phoenix í deildarkeppninni. Í nótt fer fram fjórði leikur Detroit og Boston í úrslitum Austurdeildar og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan hálfeitt eftir miðnætti. NBA Bloggið á Vísi
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira