Körfubolti

FSu skrefi nær efstu deild

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Karl Sigruðarson, þjálfari FSu.
Brynjar Karl Sigruðarson, þjálfari FSu. Mynd/Anton

FSu er komið í úrslit í umspili 1. deildar karla í körfubolta um sæti í efstu deild eftir sigur á Haukum í dag, 98-86.

FSu vann þar með báðar viðureignir liðanna í undanúrslitum umspilsins og mætir annað hvort Val eða Ármanni/Þrótti í úrslitum. Breiðablik varð deildarmeistari og er því þegar búið að tryggja sér sæti í efstu deild á nýjan leik.

Ármann/Þróttur og Valur eigast við í Laugardalshöllinni klukkan 16.00 í dag og getur Valur tryggt sér sæti í úrslitunum gegn FSu með sigri í dag. Vinni Ármann/Þróttur þurfa liðin að mætast í oddaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×