Seðlabanki Afríkuríkisins Zimbabve hefur undanfarið brugðist við ógnarhárri verðbólgu með prentun og útgáfu nýrra peningaseðla. Seðlarnir hlaupa á milljónum Zimbabve-dala og var tíu milljónadalaseðillinn settur í umferð í dag.
Verðbólga í Zimbabve hefur verið á hraðri uppleið síðastliðin átta og mælist hún nú í kringum fimmtíu þúsund prósent, að sögn breska ríkisútvarpsins.
Af þessum sökum virðist litlu skipta þótt fjöldi núlla bætist aftan við seðlana frá seðlabanka Zimbabve því verðgildi tíu milljóna dala seðils í Zimbabve nemur einungis jafnvirði rúmra 255 íslenskra króna.
Breska ríkisútvarpið tekur fram að aukin peningaútgáfa seðlabanka Zimbabve haldi verðbólgunni í hæstu hæðum og verði hann að grípa til annarra aðgerða til að laga efnahagslífið sem er vægast sagt í rjúkandi rúst.
Nokkuð er síðan Gideon Gono, seðlabankastjóri, hefur óskað eftir því að landsmenn taki höndum saman gegn verðbólgudrauginum og farið fram á að verðlag haldist óbreytt, svo sem með því að lækka verð á vörum um allt að helming.
Það hefur hins vegar litlu skipt. Atvinnuleysi er rúm 80 prósent og flykkist fólk í banka til að taka út þá litlu fjármuni sem það á til að koma í veg fyrir að sparifé þess brenni upp í óðaverðbólgunni.