Gunnlaugur verður með Formúluna á Sýn 3. janúar 2008 22:24 Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Sjónvarpsstöðin Sýn hefur senn beinar útsendingar frá Formúlu 1 kappakstrinum. Gunnlaugur Rögnvaldsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður útsendinganna en hann hefur sinnt Formúlu 1 umfjöllun á Íslandi á þriðja áratug, ýmist fyrir dagblöð, tímarit eða sjónvarp. „Formúlan hefur á liðnum árum áunnið sér sess sem eitt allra vinsælasta íþróttaefni í íslensku sjónvarpi og hyggst Sýn stórefla umfjöllunina," segir í tilkynningu frá stöðinni. „Fyrsta beina útsendingin verður frá Ástralíu um miðjan mars. Fyrir þann tíma verða ýmsir þættir um Formúlu 1 á dagskrá á Sýn, en samtals eru 18 Formúlu 1 mót á dagskrá í ár. Keppt verður á tveimur nýjum brautum og í báðum tilfellum er um kappakstur inn í miðri borg að ræða. Keppt verður í Valencia á Spáni og þá verður ekið um götur Síngapúr, þar sem ekið verður á flóðlýstri braut í fyrsta skipti í náttmyrkri." „Ég er mjög spenntur á að takast á við nýjan starfsvettvang og að geta víkkað umfjöllun um Formúlu 1 til muna. Það verða margar spennandi nýjungar á Sýn, sem verið er að leggja grunn að þessa dagana", sagði Gunnlaugur um ráðninguna.„Ég hef gengið með ýmsar hugmyndir í maganum sem ekki hefur verið hægt að útfæra til þessa á Íslandi, en það er hugur í Sýnar-mönnum. Við munum heimsækja ökumenn, lið og mótsstaði á árinu og kynda hressilega undir byrjun tímabilsins með þáttum um undirbúning keppnisliða fyrir tímabilið. Taka púlsinn og vera á staðnum. Þá stendur til að virkja áhorfendur meira í umfjöllun um Formúlu 1 og skapa stemmningu þar að lútandi um land allt með gestum í sjónvarpssal, viðtölum út á landi og leikjum ýmis konar, fyrir áhorfendur á öllum aldri. Ég lýsi hér með eftir áhugasömum börnum, uglingum, konum og körlum til að taka þátt í herlegheitunum", sagði Gunnlaugur.Útsendingarnar á Sýn verða í náinni samvinnu við vefsetrið http://kappakstur.is/, sem verður sérstakur útsendingarvefur Formúlu 1 hérlendis. Allar dagsetningar beinna útsendinga á Sýn og brautarlýsingar eru þegar komnar upp á kappakstur.is. Þá verða markvissar fréttir um Formúlu 1 á Vísi auk þess se, útvarpsstöðin Bylgjan verður með ítarleg innskot um Formúlu 1 á mótshelgum, en margmiðlun upplýsinga um Formúlu 1 verður í hávegum höfð á keppnistímabilinu.
Mest lesið „Það er björt framtíð á Nesinu“ Sport Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Enski boltinn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Enski boltinn Íslendingaliðið sótti stig og Aston Villa vann mótmælaleikinn Fótbolti Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Íslenski boltinn „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Handbolti Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Handbolti „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Körfubolti Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Fleiri fréttir Verstappen telur sig ekki geta barist um titilinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Grunur um nauðgun á heimili Schumachers Segir að formúlu 1 vanti nú illmenni Russell fyrstur í mark í Singapúr og McLaren tryggði sigur bílasmiða George Russell á ráspól í Singapúr Hringt í flesta eigendur í Formúlu 1 eftir brottreksturinn frá Red Bull Sjá meira