Hvalreki í Grindavík 18. september 2008 03:00 Margir fræknir Suðurnesjamenn hafa farið á svið. Nú hefur Bergur Þór Ingólfsson ásamt fleirum stofnað atvinnuhóp með aðsetur í Grindavík.
Leiklistarfólk sem á ættir sínar að rekja til Grindavíkur vill koma þar í gang reglulegu leiklistarstarfi. Nýverið hófust æfingar á 21 manns saknað sem Grindvíska atvinnuleikhúsið frumsýnir í lok október. Það eru Bergur Þór Ingólfsson, Víðir Guðmundsson og Guðmundur Brynjólfsson sem stofnuðu leikfélagið og semja verkið sem byggir á ævi séra Odds V. Gíslasonar. 21 manns saknað verður sýnt í nýuppgerðu Flagghúsi í Grindavík. Um sögupersónu verksins sem er einleikur segja aðstandendur: Á seinni hluta 19. aldar var prestur í Staðarsókn í Grindavík sem ekki gat sætt sig við að Íslendingar stæðu utan við þá iðnbyltingu sem hafði átt sér stað í Evrópu, Oddur V. Gíslason. Hann gat heldur ekki sætt sig við það að á einni vetrarvertíð yrðu tuttugu skipsskaðar og níutíu sjómenn týndust í hafi. Hann hafði samanburðinn vegna tíðra ferðalaga sinna til útlanda og ævi sína helgaði hann baráttunni við náttúruna, fátækt og Bakkus. Hann ferðaðist um landið endilangt til að predika um nauðsyn þess að hafa um borð í bátum allan þekktan björgunar- og slysavarnabúnað. Jafnvel henti hann hásetum útbyrðis til að sýna þeim hversu nauðsynlegt það væri að læra að synda. Honum var lýst sem „mesta braskmenni sinnar samtíðar" vegna fjölda verkefna sem hann hratt af stað: lýsisbræðslu í Höfnum, brennisteinsnámum í Krísuvík, kolanámum við Hreðavatn: Hann tók saman fyrstu kennslubók í ensku fyrir landa sína. Aldrei hélst honum á peningum. Hann stóð að frægasta brúðarráni síðustu alda á Íslandi. Hann lagði grunninn að slysavörnum á Íslandi dó síðan í sárri fátækt í landnemabyggðum Kanada. Í stefnuskrá hins nýja leikhúss segir: „Meginmarkmið félagsins er að taka þátt í þjóðfélagsumræðum, … Til þess að ná markmiðum sínum hyggjast félagsmenn nú stofna FYRSTA ATVINNULEIKHÚSIÐ Í GRINDAVÍK og skal það bera sama nafn og félagið. … GRAL skal setja upp leiksýningar í Grindavík sem standast þær bestu gæðakröfur sem gerðar eru til atvinnuleikhúss í landinu." Bergur Þór segir þá félaga hafa unnið lítinn þátt um Odd árið 2000 fyrir hvatningu og ábendingu Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur, núverandi bæjarstjóra. GRAL hafi síðan byrjað sem djók, en nú sé komin alvara í málið. Sýnt verði í Flagghúsinu sem er uppgert pakkhús í Járngerðarstaðahvefinu. Þar komist fyrir 30-40 gestir. Festi í Grindavík verði brátt rifin og sé því ekki framtíðarhúsnæði fyrir leiksýningar. Líklega verði næst ráðist í barnaleikrit fyrir Grindvíkinga og nágranna. Þeir hafi þá augastað á gamla Kvenfélagshúsinu sem er fornt menningarsetur þar í bæ. „Þótt leikhús sé ekki steinsteypa stefnir GRAL að því að vera komið með fast húsnæði fyrir haustið 2012", segir í stefnuskránni. Eitt hús er uppistandandi af verslunarhúsum Einars kaupmanns í Garðhúsum. Flagghúsið var áður íbúðarhús, byggt 1890 og síðar pakkhús við Einarsbúð. Það er upphaf skipulagðrar byggðar í Grindavík, enda öll húsnúmer frá því talin. Flagghúsið hefur verið íbúðarhús, verbúð, samkomustaður, beituskúr, pakkhús, salthús, veiðarfærageymsla og netaloft. Auk þess er þarna leiksvið kvikmyndarinnar Sölku Völku.pbb@frettabladid.is
Mest lesið Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Tíska og hönnun Svaraði kallinu frá Ben Stiller Bíó og sjónvarp „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið Seldist upp á einni mínútu Lífið Mætti svo gott sem nakin á rauða dregilinn Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Var tilbúinn með tapræðu í matarboðinu Lífið Fleiri fréttir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira