Leitað til fortíðar 7. nóvember 2008 08:00 Leita til fortíðar á sunnudag Tónlistarmennirnir sem koma fram á 15.15 tónleikum í Norræna húsinu.
Ný tónleikasyrpa í tónleikaröðinni 15:15 hefst í Norræna húsinu á sunnudag kl. 15.15, eins og lög gera ráð fyrir. Tónleikarnir bera yfirskriftina Leitað til fortíðar, enda eiga verkin sem flutt verða það sameiginlegt að byggja á þjóðdönsum, þjóðlögum, fornum sögum eða ljóðum. Flytjendur á tónleikunum eru þau Þórunn Guðmundsdóttir sópransöngkona, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Ármann Helgason klarinettleikari og Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari. Tónleikarnir hefjast á tveimur verkum eftir franska tónskáldið Henri Tomasi, Concert Champetre fyrir blásara tríó og Sonaina attque fyrir einleiks klarinett. Því næst taka við undurfalleg lög fyrir einsöngsrödd og óbó eftir enska tónskáldið Vaughan Williams, en lögin voru samin við tíu ljóð eftir skáldið William Blake. Þar á eftir verður flutt verk Benjamins Britten fyrir einleiksóbó, Six Metamorphoses after Ovid. Tónleikunum lýkur svo á tveimur verkum eftir Gordon Jakob, þremur sönglögum fyrir sópran og klarinett og tríói fyrir blásara. Verkin eru bæði eins og flest verk Gordons Jakobs; á glaðlegum nótum með þjóðlegu ívafi. - vþ
Mest lesið Útför Megasar Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Sam Smith trúlofað Lífið Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun Lífið Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira