Ferrari-liðið átti góðan dag þegar Kimi Raikkönen sigraði í Barcelona kappakstrinum og félagin hans Felipe Massa varð annar. Lewis Hamilton náði sér aftur á strik og náði þriðja sætinu.
Mótið í dag var frekar flatt og lítið um framúrakstur eins og venjulega. Raikkönen var á ráspól í dag og var þetta áttunda árið í röð sem sá sem er á ráspól vinnur sigur í keppninni.
Finninn Raikkönen hefur nú náð níu stiga forskoti á Lewis Hamilton í keppni ökuþóra, en sigur hans í dag var aldrei í hættu. Hamilton sótti nokkuð hart að Massa á lokasprettinum en varð að láta sér nægja þriðja sætið. Robert Kubica á BMW varð fjórði, en Fernando Alonso á Renault varð að hætta keppni í fimmta sætinu eftir vélarbilun.
Öryggisbíllinn þurfti í tvígang að koma á vettvang eftir óhöpp og lenti Finninn Heikki Kovalainen í ljótum árekstri þegar felga á bíl hans gaf sig með þeim afleiðingum að hann skall á dekkjahrúgu á mikilli ferð. Hann slapp þó að mestu ómeiddur en það tók 10 mínútur að veiða hann út úr bílflakinu.
Næsta keppni fer fram í Tyrklandi eftir hálfan mánuð.
Átta efstu menn í Spánarkappakstrinum:1. Kimi Raikkonen (Fin) Ferrari 1 klukkustund 38 mín 19.051 sek
2. Felipe Massa (Brz) (Ferrari) 3.228 sek á eftir
3. Lewis Hamilton (GB) McLaren-Mercedes - 4.187
4. Robert Kubica (Pol) BMW Sauber - 5.694
5. Mark Webber (Aus) Red Bull-Renault - 35.938
6. Jenson Button (GB) Honda - 53.010
7. Kazuki Nakajima (Jpn) Williams-Toyota - 58.244
8. Jarno Trulli (Ita) Toyota - 59.435