Emil í byrjunarliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. nóvember 2007 14:08 Emil hefur verið í byrjunarliði Reggina í öllum leikjum liðsins til þessa á tímabilinu. Nordic Photos / Getty Images
Emil Hallfreðsson heldur sæti sínu í byrjunarliði Reggina í dag. Tveir leikir fóru fram á Ítalíu í gær. Þjálfari Reggina var rekinn í vikunni og Renzo Ulivieri stýrir liðinu í dag. Hann stillir liðinu upp samkvæmt 3-5-2 leikkerfinu og er Emil vinstra megin á miðjunni en ekki á vinstri kantinum eins og hingað til. Reggina mætir Napoli á útivelli og má búast við erfiðum leik. Tveir leikir fóru fram í gær og var aðeins eitt mark skorað í þeim. Það gerði Giampaolo Pazzini fyrir Fiorentina sem vann Lazio á útivelli, 1-0. Í hinum leik kvöldsins gerðu AC Milan og Torino markalaust jafntefli. Massimo Mutarelli, leikmaður Lazio, fékk að líta rauða spjaldið seint í leiknum. AC Milan er nú komið upp í sjöunda sæti deildarinnar eftir fremur slappa byrjun á tímabilinu. Fiorentina komst með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar í bili en Roma og Juventus geta komist upp fyrir liðið með sigri í dag. Torino er í tólfta sæti fyrir leiki dagsins og Lazio í því fjórtánda. Leikir dagsins á Ítalíu: Cagliari - Sampdoria Catania - Atalanta Empoli - Roma Genoa - Palermo Livorno - Udinese Napoli - Reggina Parma - Siena Juventus - Inter (kl. 19.30) Allir leikirnir hófust klukkan 14.00 nema stórleikur helgarinnar, viðureign Juventus og Inter sem verður kvöldleikur dagsins.
Ítalski boltinn Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Hættur aðeins þrítugur Golf Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Fleiri fréttir Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Freyr himinlifandi með íslensku strákana Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira