Körfubolti

Keflavík vann KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Kara Sturludóttir var drjúg í kvöld með 17 stig og 22 fráköst.
Margrét Kara Sturludóttir var drjúg í kvöld með 17 stig og 22 fráköst. Mynd/Vilhelm

Nú er ljóst hvaða fjögur lið komust í undanúrslit Powerade-bikarkeppni kvenna eftir að Keflavík vann KR í kvöld.

Lokatölur leiksins voru 108-66 og sigurinn því öruggur. Keflavík mætir Grindavík í undanúrslitum keppninnar á föstudagskvöldið en í hinum leiknum mætast Haukar og Valur á Ásvöllum.

Leikur Keflavíkur og Grindavíkur hefst klukkan 21.00 og verður í Laugardalshöllinni. Leikurinn á Ásvöllum hefst klukkan 19.00.

TaKesha Watson skoraði flest stig Keflvíkinga í kvöld, 21 talsins. Margrét Kara Sturludóttir skoraði sautján stig og tók 22 fráköst.

Hildur Sigurðardóttir skoraði 22 stig fyrir KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×