Evrópski seðlabankinn býr til stuðpúða 9. ágúst 2007 13:58 Evrur.
Evrópski seðlabankinn hefur opnað pyngjur sínar og boðist til að lána evrópskum fjármálastofnunum allt að 95 milljarða evra, jafnvirði um 8.300 milljarða íslenskra króna, til að mýkja áhrifin af harðri lendingu vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Mörg lánafyrirtæki sem hafa haldið úti starfsemi í Bandaríkjunum hafa orðið illa úti vegna samdráttarins. Fasteignalánamarkaðurinn sem um ræðir er allsérstæður en hann nær einungis til fólks með slæmt lánshæfi og hefur lent á svörtum lista almennra lánastofnana. Samdráttur varð á þessu lánamarkaði í Bandaríkjunum á vordögum vegna mikilla vanskila og hafa lánafyrirtæki lent í miklum hremmingum vegna þessa bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Með aðgerðum sínum vill evrópski seðlabankinn hins vegar koma í veg fyrir að áhrifanna gæti í evrópsku efnahagslífi en til viðlíka aðgerða hefur ekki verið gripið síðan eftir hryðjuverkaárásirnar í New York í Bandaríkjunum árið 2001.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira