Fjárfestingasjóður kaupir Barney's 23. júní 2007 10:16
Fjárfestingafélagið Istithmar hefur keypt bandarísku fataverslunina Barney's í New York fyrir 825 milljónir dala, jafnvirði 51,5 milljarða íslenskra króna. Barney's selur vörur í dýrari kantinum en á dögunum kynnti þar breski auðkýfingurinn Philip Green nýja fatalínu Kate Moss, sem hún hannaði fyrir verslanakeðjuna Topshop. Fjárfestingafélagið er með aðsetur í arabaríkinu Dubai og í eigu stjórnvalda. Núverandi eigandi verslunarinnar, eignarhaldsfélagið Jones Apparel Group Inc., fær með viðskiptunum tvöfalt meira en það greiddi fyrir verslunina undir lok árs 2004, að sögn bandarísku fréttaveitunnar Bloomberg, sem segir að með gjörningnum sé stefnt að því að auka hagnað Barney's og verðmæti hlutabréfa í versluninni. Gert er ráð fyrir að sölunni ljúki á haustdögum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira