EMI samþykkir yfirtökutilboð 21. maí 2007 17:52 Bítlarnir.
Stjórn breska útgáfufyrirtækisins EMI hefur ákveðið að taka yfirtökutilboði fjárfestingafélagsins Terra Firma. Kaupverð nemur 3,2 milljörðum punda, rúmum 397 milljörðum íslenskra króna, að meðtöldum skuldum. Að skuldum frádregnum hljóðar boðið upp á 2,4 milljarða punda, jafnvirði 298 milljarða íslenskra króna. Hluthafar EMI eiga þó eftir að samþykkja tilboðið. Að sögn forsvarsmanna EMI bárust nokkur tilboð í fyrirtækið. Mun tilboðið frá Terra Firma hins vegar hafa verið það besta. EMI hefur átt við rekstrarvanda að stríða upp á síðkastið vegna samdráttar í sölu á geisladiskum en fyrirtækið tapaði 260 milljónum punda, rúmum 32 milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári. Nokkur fyrirtækið horfðu til þess að kaupa útgáfufélagið sem hefur tónlistarmenn á borð við Robbie Williams, Bítlana, Coldplay og fleiri á sínum snærum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira