Viðskipti innlent

Glitnir býður upp á ný húsnæðislán á morgun

Glitnir.
Glitnir.

Glitnir ætlar frá og með morgundeginum að bjóða upp á nýja tegund húsnæðislána þar sem helmingur lánsins er verðtryggður í íslenskri mynt en hinn helmingurinn óverðtryggt lán í lágvaxtamyntunum jenum og svissneskum frönkum. Vextir eru 4,5 prósent miðað við hámarksveðsetningarhlutfallið 80 prósent, sem er sama hlutfall og á verðtryggðum lánum.

Í tilkynningu frá Glitni segir að með lánum sem þessu sé verið að koma til móts við þann vaxandi hóp viðskiptavina bankans sem hafi áhuga á að fjármagna húsnæði með erlendum lánum án þess að taka of mikla gengisáhættu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×