Sígilt sultubrauð fáanlegt að nýju 11. apríl 2007 14:39
Hjá Vöku-Helgafelli er komin út að nýju bókin Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steinsdóttur með myndum eftir Brian Pilkington. Tuttugu ár eru síðan bókin kom fyrst út en fyrir hana hlaut Kristín Íslensku barnabókaverðlaunin vorið 1987. Lilla er nýorðin tíu ára og ætlar að dvelja sumarlangt hjá ömmu sinni og afa í litlum kaupstað austur á fjörðum. Í fyrstu er hún feimin og vondauf um að sumarið verði skemmtilegt en annað kemur á daginn. Fljótlega eignast hún fjölda vina og dregst inn í leiki og ævintýri krakkanna í þorpinu. Í þessari skemmtilegu sögu flytur Kristín Steinsdóttir lesendur sína inn í fjörugt kaupstaðarlíf sumarið 1955 þegar Tarzan er sýndur í þrjúbíó og síldin ræður lögum og lofum. Franskbrauð með sultu var fyrsta barnabók Kristínar Steinsdóttur sem síðan hefur sent frá sér fjölmargar bækur fyrir alla aldurshópa. Fyrir bók sína Engill í vesturbænum hlaut hún Norrænu barnabókaverðlaunin, Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunin og Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur.
Mest lesið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Etur kappi við Obama og Reynolds Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira