AMR snýr frá taprekstri til hagnaðar 17. janúar 2007 14:59
Bandaríska flugsamsteypan AMR Corp., móðurfélag bandaríska flugfélagsins American Airlines, skilaði 17 milljóna dala hagnaði á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Þetta jafngildir tæpum 1,2 milljarða króna hagnaði sem er viðsnúningur frá milljarða taprekstri á sama tíma árið 2005. Á fjórðungnum árið 2005 skilaði félagið 600 milljóna dala tapi en það jafngildir því að AMR Corp. hafi tapað 42,3 milljörðum íslenskra króna. Tekjur félagsins á tímabilinu námu 5,4 milljörðum dala eða 380,7 milljörðum íslenskra króna sem er 200 milljóna dala hækkun á milli ára. Helsta ástæðan fyrir betri afkomu á síðasta fjórðungi er lægri rekstrar- og eldsneytiskostnaður.Greiningardeild Glitnis benti á það í morgun að gengi hlutabréfa í AMR hafi hækkað um 33 prósent það sem af sé ári. FL Group keypti tæpan 6 prósenta hlut í félaginu undir lok síðasta árs fyrir 28 milljarða íslenskra króna en deildinni reiknast til að verðmæti hlutarins hafi hækkað um 8,9 milljarða krónur.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira