Bíó og sjónvarp

Metgróði vestanhafs

Gamanmyndin Superbad er enn þá vinsælasta myndin vestanhafs.
Gamanmyndin Superbad er enn þá vinsælasta myndin vestanhafs.

Tekjur af miðasölu í kvikmyndahúsum vestanhafs hafa í fyrsta sinn rofið fjögurra milljarða dollara markið yfir sumartímann sem samsvarar rúmlega 250 milljörðum króna.

Sló þetta góða sumar út sumarið 2004 þegar tekjurnar náðu 3,95 milljörðum dollara. Talið er að tekjurnar þetta sumarið endi í 4,15 milljörðum dollara þegar sumartímabilinu lýkur hinn 3. september en það hefur einkennst af hvers kyns framhaldsmyndum og ef miðað er við þessar tölur þá má reikna með að það verði framhald á slíkri framleiðslu frá Hollywood.

Búist er við að þetta sumar seljist um 606 milljónir miða, sem yrði sjötti besti árangurinn í Norður-Ameríku frá upphafi. Flestir miðar seldust árið 2002, eða rúmlega 653 milljónir. Gamanmyndin Superbad hélt efsta sæti sínu yfir vinsælustu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Í öðru sæti var The Bourne Ultimatum og í því þriðja var Rush Hour 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.