Heilsa

Í sumarbústað með Lindu Pé

Linda Pétursdóttir deilir uppáhalds morgunmat sínum með Völu Matt í Mat og lífsstíl í kvöld.
Linda Pétursdóttir deilir uppáhalds morgunmat sínum með Völu Matt í Mat og lífsstíl í kvöld. MYND/valli

Fegurðardísin Linda Pétursdóttir leyfir Völu Matt og kíkja í matarskápana sína í Mat og lífsstíl í kvöld. „Við skelltum okkur austur fyrir fjall í stórglæsilegan sumarbústað sem fjölskylda Lindu á. Þar bjó hún til einn af sínum uppáhaldsréttum, sem er auðvitað fiskur – þar sem hún er sjávarplássstelpa, eins og hún lýsir því sjálf,“ sagði Vala og hló við. „Það var nætursöltuð ýsa, sem var meðal annars með kanil, sem var svolítið óvenjulegt. Þetta var ótrúlega gott, fljótlegt og einfalt,“ bætti hún við.

„Linda var líka með dúndurdesert en hún byrjaði á því að gefa okkur uppskrift að morgunmatnum sem henni finnst best að fá sér á morgnana. Það er svona heilsudrykkur sem er aðallega úr ávöxtum og bara algert sælgæti,“ sagði Vala.

Morgundrykkur

Hnefafylli af möndlum

2 dl vatn

3-4 döðlur

1 banani

Hnefafylli bláber

4-6 jarðarber

2-3 klakar

Öllu blandað vel saman í blandara. Gott er að hafa möndlur og döðlur sem grunn og síðan má setja hvaða ávexti sem er út í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.