Þetta kemur fram í grein á vefsíðu kvikmyndatímaritsins Variety sem birtist í gær undir nafninu „Iceland‘s landscape brings big names“ eða Íslenskt landslag laðar að stóru nöfnin.
Auk hinnar sérstæðu náttúru landsins er nefnt að hækkun endurgreiðslunnar úr ellefu í fjórtán prósent hafi jafnframt leikið stórt hlutverk í því að fá erlend kvikmyndatökulið hingað til lands.

Kvikmyndir Eastwoods, Flags of our Fathers og Letters from Iwo Jima, voru báðar að hluta til teknar upp hér á landi. Þá er jafnframt minnst á myndirnar Batman Begins, Bond-myndina Die Another Day og Laura Croft: Tomb Raider en greinarhöfundur segir þær allar hafa verið stærri heldur en hið hundruð þúsund ferkílómetra landsvæði.
Rætt er við Einar Tómasson, verkefnisstjóra Film in Iceland, en þar kemur fram að erlent kvikmyndagerðarfólk sem hingað kemur hrífist ekki síður af því hve allar vegalengdir séu stuttar og hversu auðvelt sé að redda öllum hlutum.
„Ég man sérstaklega eftir pókersenunni í Flags of our Fathers en það náðist að útvega vöruskemmu fyrir tökuna með klukkutíma fyrirvara,“ segir Einar.