Efnislegt 11. mars 2007 05:45 Pólitík er oft skrýtin skrúfa eins og sést til dæmis í hinu sérstaka auðlindaákvæðismáli. Framsóknarmenn hótuðu semsagt að sprengja ríkisstjórn ef ákvæði um sameign þjóðarinnar á sjávarauðlindum yrði ekki fest í stjórnarskrá. Sjálfstæðismenn spyrntu við fótum, þar til löglærðir menn bentu á að líklega væri þetta ákvæði merkingarlaust, og samþykkktu þá að spyrða ákvæðinu við hornstein íslenskrar stjórnskipanar, það er jú merkingarlaust. Meðan Framsókn og Sjálfstæðisflokkur eru komin aftur í sleik klóra ófáir sér í höfðinu yfir þessu máli; löglærðu mennirnir í Lögbergi gera gott betur og rífa í hár sitt og skegg. Rökhugsun landsmanna er þó ekki það eina sem hefur verið misboðið í þessu máli; stjórnmálamenn, lögmenn og fjölmiðlar slógu tvær flugur í einu höggi og léku málvitund okkar grátt í leiðinni. Einn morguninn hlustaði ég til dæmis á sjávarútvegsráðherra ræða auðlinda-ákvæðið á Morgunvakt Rásar eitt. Í einni og sömu andrá tókst honum að segja að þetta mál væri í „efnislegum undirbúningi" í stjórnarskrárnefnd, „efnislegri meðhöndlun" væri ekki lokið, málið biði því enn „efnislegrar úrvinnslu" og að „efnisleg vinna" ætti ekki að fara fram í þingsölum heldur ætti að bíða þar til málið hefði verið lagt fram „efnislega". Þetta var árla morguns og ég viðurkenni að ég var ekki sérlega vel undir það búinn að hlusta á röklegt heljarstökk af þessu tagi. Einhverra hluta vegna fór ég að hugsa um blaðagrein sem ég las einhvern tímann og fjallaði um að sökum sívaxandi samkeppni við atvinnulífið veldust sífellt lakari manngerðir til þátttöku í stjórnmálum. Ég var þó fljótur að hrista þá hugsun af mér; það á fjandakornið varla við á Íslandi. Eina rökrétta ályktunin sem ég gat dregið af orðum ráðherrans var að fyrir utan hefðbundin þing- og nefndarstörf þurfa alþingismenn að vinna ókjör af „óefnislegri vinnu". Og fyrst ekki er vikið einu orði að henni í stjórnarskránni hlýtur að vera um sjálfboðastarf að ræða. Hin „óefnislega vinna" felst mögulega í því að ákveða hvers konar pappír á að prenta lögin á og hvaða leturgerð á að nota. Þegar það er afgreitt á bara eftir að ákveða hvað stendur í sjálfum lögunum. Því er ekki að neita að hversdagslegustu hlutir hljóma ábúðarmeiri og mikilvægari þegar orðum eins og „efnislegt" hefur verið skeytt framan við. Kannski gefur það góða raun ef foreldrar biðja börnin sín um að ljúka við efnislegt innihald grautarskálanna. Eða krakkinn starir bara á þig eins og þú sért fábjáni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun Mótum framtíðina saman Jónína Hauksdóttir ,Magnús Þór Jónsson Skoðun Íslenskir flóttamenn - í okkar eigin landi Gunnar Magnús Diego Skoðun Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun Magga Stína! Helga Völundardóttir Skoðun Halldór 4.10.2025 Halldór 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Transumræðan og ruglið um fjölda kynja Einar Steingrímsson Skoðun Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun Lyftum umræðunni á örlítið hærra plan Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun
Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun
Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun
Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun
Ísrael á ekki heima á gleðileikum evrópskra sjónvarpsstöðva sem starfa í almannaþágu Stefán Jón Hafstein Skoðun
Samræmd nálgun að öryggi og skilvirkni á ytri landamærum - Innleiðing EES á Íslandi Arngrímur Guðmundsson Skoðun
Leikskóli þarf meira en þak og veggi. Kópavogsmódelið og Akureyrarleiðin sem leið að aukinni velferð barna Anna Elísa Hreiðarsdóttir,Svava Björg Mörk Skoðun