Ummæli safnstjóra metin á tvær milljónir króna 15. febrúar 2007 07:00 Hvítasunnudagur eftir kjarval (Olía, 100x113) Gríðarlegur áhugi er á þessu nýuppgötvaða verki sem verður boðið upp 27. febrúar. „
Þetta verður það sama og með geirfuglinn sem var boðinn upp úti í London á sínum tíma. Það fór fram söfnun og uppboðshaldarinn úti vissi upp á krónu hvað safnaðist og fuglinn fór á það,“ segir Tryggvi Páll Friðriksson í Gallerí Fold og einn helsti uppboðshaldari Íslands. Eins og fram hefur komið í fréttum, meðal annars á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudag, hefur komið fram áður óþekkt verk eftir Kjarval, í kúbískum stíl, í Danmörku og verður það boðið upp í lok þessa mánaðar hjá Bruun Rasmussen. Verkið er metið á 1,2 til 1,8 milljónir af Bruun en fastlega má gera ráð fyrir því að áhugasamir kaupendur vilji gefa allt að fimm milljónir fyrir það. Í samtali við bæði Morgunblaðið og fréttastofu RÚV lét safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Hafþór Yngvason, þess svo getið að þarna væri um mjög merkt verk að ræða sem safnið vildi gjarnan eignast. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa þessi ummæli reynst olía á eld áhugasamra listaverkakaupenda sem nú hafa fengið á því staðfestingu að þarna sé dýrgripur á ferð. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að nokkrir vellauðugir listaverkakaupendur séu í startholunum og það hefur Tryggvi einnig heyrt. Áhugi Hafþórs er metinn á tveggja milljóna króna hækkun á uppboðinu. „Ég get ekki ímyndað mér annað. Já, margir hafa áhuga á þessu verki og hann minnkar ekki við þessi ummæli safnstjórans. Þetta er stór mynd og gæti farið á fimm milljónir. Jafnvel meira. Þessi mynd er góð, mjög sérstök, það er hárrétt, og það væri slys ef hún lenti ekki inni á safni. En hins vegar myndi ég ekki flíka því ef ég ætlaði að kaupa hana. Þeir eru það margir sem græða svo mikið hér á landi að þeir depla ekki auga yfir tveimur milljónum,“ segir Tryggvi í Fold sem telur sénslaust að væntanlegir kaupendur taki mark á því þegar Hafþór höfðar til þjóðarhollustu þeirra og láti Listasafninu það eftir að bjóða eitt í verkið. „Við ætlum að bjóða og erum með eitthvert fé til þess,“ segir Hafþór Yngvason safnstjóri. Hann segir eðlilegt að þegar verk rati á forsíðu Morgunblaðsins þá veki það athygli og hækki verðið. „En það myndi skjóta skökku við ef ég segði ekki þetta verk þess virði. Og ég tel mikilvægt að það fari á opinbert safn og verði sameign þjóðarinnar.“ Safnið hefur ekki úr miklu fé að spila og Hafþór segir það vissulega verra ef menn færu að bjóða af kappi á móti safninu spurður um hvort hann sé að reyna að höfða til þjóðarhollustu væntanlegra íbjóðenda. „En þetta er opinn markaður. Nei, það er ekki ákveðið hvort ég fari sjálfur út til Danmerkur á vegum safnsins eða einhver annar.“
Mest lesið Seldist upp á einni mínútu Lífið Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Hvers vegna karpa menn í þartilgerðu húsi? Lífið Séð og heyrt gæti átt framhaldslíf Lífið Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Tíska og hönnun Iðjuþjálfi á Nesinu fer sínar eigin leiðir í skólamat Lífið Frumsýning á Vísi: Stórbrotinn sigurvilji Sigurbjörns á hvíta tjaldið Lífið Svaraði kallinu frá Ben Stiller Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklæddar, í hátísku og Palli rúmliggjandi Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið Fleiri fréttir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira