Síminn fyrstur á Íslandi með WiMAX tækni 17. nóvember 2006 13:41
Síminn býður viðskiptavinum sínum aðgang að samskiptaneti sem nýtir WiMAX tækni. Um er að ræða þráðlaust net sem hentar vel fyrir bandbreiðar Internetteningar. Nú þegar er þessi þjónustu í tilraunarekstri fyrir sumarhúsasvæði í Grímsnesi. Í tilkynningu segir að Síminn sé fyrst fyrirtækja á Íslandi til að bjóða upp á þessa tækni. WiMAX tæknin er langdrægt kerfi sem hentar vel þar sem hvorki er ljósleiðara- né ADSL-samband en með henni er hægt að veita notendum við bestu aðstæður mikinn tengihraða og afkastamikla sítengingu við Netið. Þá hentar WiMAX tæknin vel til gagnaflutninga og auk Internetsins er hægt að tengjast innri netum fyrirtækja með þessari tækni. Í tilkynningunni segir ennfremur að nettenging sem þessi bæti lífsgæði til muna í hinum dreifðu byggðum landsins og auðveldar fólki að stunda fjarvinnu og fjarnám, eða njóta afþreyingar og fróðleiks á Internetinu. Síminn hefur staðið fyrir tilraunum með WiMAX net bæði í Grímsnesinu og einnig í Þingeyjarsveit. Tilraunirnar hafa gengið það vel að í næsta mánuði munu þessar öflugu nettengingar standa viðskiptavinum Símans í Grímsnesinu til boða. Unnt er að nýta þessa nýju tækni fyrir talsíma og í Bandaríkjunum hefur það verið gert fyrir farsímasamtöl. Kerfið býður upp á þann möguleika að taka frá ákveðna bandbreidd fyrir símtöl þannig að netumferð og niðurhal gagna hafi ekki áhrif á gæði símtalanna, að því er segir í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira